ALDA fasteignasala er staðsett að Laugavegi 182, 105 Reykjavík og er stofnuð utan um trausta og metnaðarfulla fasteignasala. Gildi fasteignasölunnar eru rík þjónustulund, sölumennska, eftirfylgni, sanngirni og hagsmunir kaupenda og seljenda.
Starfsfólk okkar hefur starfað lengi við fasteignaviðskipti og býr yfir mikilli reynslu og sérþekkingu. Starfsmenn okkar eru ýmist lögfræðimenntaðir eða löggiltir fasteigna og skipasalar. Helstu viðskiptavinir okkar eru einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, bankar, sparisjóðir, hið opinbera auk sveitarfélaga. Þau verkefni sem við tökum að okkur eru fyrst og fremst sala á íbúðar- og atvinnuhúsnæði og verðmöt á fasteignum.