Opið hús: 20. mars 2023 kl. 17:30 til 18:00.Opið hús: Húsalind 15, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 20. mars 2023 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
SELJANDI ÓSKAR EFTIR SKIPTUM Á DÝRARA SÉRBÝLI Í LINDAHVERFI.
Húsalind 15. fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð með verönd og garði. Alda fasteignasala og Ingi Þór Lögg. Fasteignasali kynna.
102,5 fm, fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngang í litlu fjölbýli við Húsalind 15, 201 Kópavogi. Eignin stendur við enda í rólegri botnlangagötu Eign skiptist í: Forstofu, gang/hol, eldhús/stofu í opnu rými, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottaaðstöðu, sér geymslu og hlutdeild í sameign. Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og góðu skápaplássi. Á Gang/holi er harðparket. Eldhús/stofa eru í björtu samliggjandi rými. Í eldhúsi er nýleg, hvít innrétting með flísum milli efri og neðri skápa, dökkar bekkplötur, spanhelluborð í eyju, eyjuháfur og innfelldur ísskápur sem getur fylgt kaupunum. Gengið er úr rýminu út á verönd/sólpall með skjólveggjum. Á gólfum er harðparket. Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, baðkari og flísalögðum sturtuklefa. Svefnherbergi eru þrjú, öll með harðparketi á gólfum. Tvö af þremur herbergjum eru með ágætum fataskápum. þvottaaðstaða er við hliðina á eldhúsi með flísum á gólfi. Sérgeymsla er við hlið inngangs og sameiginleg hitakompa.
Vel skipulögð eign í rólegri botnlangagötu, góð staðsetning á þessum vinsæla stað í Lindahverfinu í Kópavogi.
Nánari upplýsingar veitir Ingi Þór Ingólfsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6984450, tölvupóstur [email protected]