Alda fasteignasala og Ingi Þór Lögg. Fasteignasali kynna. Eskihlíð 26. Björt og vel skipulögð81,2fm, þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í góðu fjölbýli við Eskihlíð á vinsælum stað í Hlíðunum.
Eign skiptist í. Forstofu/gang, eldhús/stofa, tvo svefnherbergi, sérgeymsla og hlutdeild í sameign. Nánari lýsing. Komið er inn á gang/hol með flísum á gólfi og ágætum fataskáp. Svefnherbergi eru tvö, bæði með parketi á gólfi og fataskápum í báðum herbergjum. Stofa/eldhús eru i samliggjandi, björtu rými, með parketi á gólfi. Gengið er úr stofu út á suðaustur svalir. Eldhús er með stórri hvítri og viðarlitaðri innréttingu, steinn á bekkjum viðarklæðningu og gleri á votsvæði á milli efri og neðri skápa, innbyggðum ísskáp, 45cm uppþvottavél, helluborði og bakaraofni. Baðherbergi var tekið í gegn 2017 af fyrri eiganda, með flísum á gólfi og veggjum að hluta, frístandandi sturtuklefa og hvítum skáp og vaskaskáp
Húsfélagið Hefur nýlega lokið á framkvæmdum og húsið í mjög góðu ástandi. Verið er að ljúka við að skipta um hurðir i sameign, nýjir hljóðeingangraðir gluggar í íbúð, húsið málað að utan, lokafrágang á þaki er nýlokið samkvæmt seljanda. Skipt um teppi fyrir nokkrum árum. Hellulagt er fyrir framan innganga en á bílastæðum á lóð er möl. Nánari upplýsingar veitir Ingi Þór löggiltur fasteignasali. 698-4450 [email protected]