Pálsbúð 16, 815 Þorlákshöfn
74.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
179 m2
74.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
0
Fasteignamat
44.100.000

ALDA fasteignasala s. 527-1000 kynnir í einkasölu: glæsilegt nýtt fjögurra til fimm herbergja 179,2m2 einbýlishús á einni hæð neðan götu í Pálsbúð 16, 815 Þorlákshöfn. 

Eignin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings m.v byggingarstig 5.

Fyrir frítt verðmat smellið HÉR.

Eignin afhendist á byggingarstigi 5, tilbúin til innréttingar, en getur skilast lengra komin sé þess óskað. Húsið er staðsteypt, filtað og málað að utan, gluggar úr ál/timbri, allir léttir veggir eru byggðir úr spón- og gipsplötum frá gólfi og upp í þak, öll votrými eru staðsteypt, gert er ráð fyrir gólfhita og innfelldum blöndunartækjum í baðherbergi. Búið er að mála húsið eina umferð að utan og verður farið í lokaumferð þegar veður lagast. 

Pálsbúð 16 telur bílskúr, geymslu, þrjú til fjögur svefnherbergi, gestasalerni, baðherbergi(gert ráð fyrir innbyggðum blöndunartækjum), stofu, þvottahús og eldhús

Nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt löggiltur fasteignasali í síma 777-2288 eða [email protected]

Nánari lýsing

Pálsbúð 16 er nýtt staðsteypt einbýlishús á einni hæð neðan götu en flott útsýni er úr bakgarði hússins. 

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Jón G. Sandholt löggiltur fasteignasali í síma 777-2288 eða [email protected]

Kostnaður kaupanda vegna kaupa á nýbyggingu:

Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar.
Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%.
Þinglýsingargjald er 2.500kr fyrir hvert skjal.
Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald af fasteigninni þegar brunabótarmat liggur fyrir.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALDA fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.